top of page


Bananabrauð
2 dl haframjöl 3 dl hveiti 2 tsk kanill 1/2 salt 1 tsk matarsódi 2 tsk lyftiduft 1 msk chia fræ 100 gr pekan hnetur 12 ferskar döðlur 3 vel þroskaðir bananar 1 egg 2 msk hnetusmjör 2 msk olía Aðferð: Saxið pekan hneturnar smátt, skiljið nokkrar heilar eftir til skrauts. Steinhreinsið döðlurnar og skerið í bita. Stappið saman vel þroskuðum bönunum. Blandið þurrefnunum saman í skál og hrærið. Bætið því næst döðlum, bönunum, eggi, hnetusmjöri og olíu saman við og hrærið vel. Set
Arna Óttarsdóttir


Flatbrauð/vefja
3 1/2 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 msk olía 1 1/2 dl vatn Hvítlaukssmjör: 4 rif hvítlaukur 100 gr smjör Aðferð: Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti. Hellið því næst olíu og vatni saman við og blandið vel og myndið kúlu. Setjið kúluna í plast og leyfið að standa í 30 mínútur. Skiptið deiginu í 8 parta, flatt út með tortillajárni eða kökukefli. Hægt að bera olíu á bökunarpappír á milli kakana og láta standa ef þær eru ekki steiktar strax. Steiktar við háan hita
Arna Óttarsdóttir


Kladdkaka
2 egg 2 1/2 dl sykur 100 gr brætt smjör 1 dl hveiti 5 msk kakó 100 gr súkkulaði 2 tsk vanilludropar Salt Aðferð: Þeytið saman eggjum og sykri, bætið síðan bræddu smjöri saman við. Því næst er hveitið og kakó sigtað út í ásamt vanilludropum og smá salti. Hrærið saxað súkkulaði eða súkkulaði spænir saman við með sleif. Sett í smurt smelluform. Bakað við undir/yfir hita 180°C í 20 mínútur. Sigtið flórsykur yfir og berið fram með ís/rjóma og berjum.
Arna Óttarsdóttir


Pestósnúðar
4 1/2 tsk ger(einn pakki þurrger) 1 dl olía/eða brætt smjör 5 dl volg mjólk 2 msk sykur 1 tsk salt 15 dl hveiti(3 dl seinna) Fylling: 1 krukka grænt pestó eða heimagert pestó 100-200 gr rifinn ostur Heimagert pestó: 150 gr parmesan 1 stórt búnt basil 100 gr furuhnetur 1 hvítlauksrif salt pipar 1-2 msk ólífuolía Aðferð: Gerið leyst upp í volgri mjólk, þar til freyðir, olíunni blandað saman við. 12 dl af hveiti, sykur, og salt sett saman í skál. Gerblöndunni hellt ofan í skálin
Arna Óttarsdóttir


Skyrkaka með jarðaberjum
Botn: Digestive kex 12-13 kökur 90 gr smjör brætt 1 tsk kanill 1 msk púðursykur Fylling: 1 stór dós jarðaberjaskyr 300 ml rjómi 2 msk flórsykur 1 tsk vanillusykur Skraut: Jarðaber Aðferð: Kexið mulið í matvinnsluvél, bræddu smjöri, kanil og púðursykri bætt út í og hrært saman. Þjappað ofan í kökuform. Rjóminn þeyttur og jarðaberjaskyri, flórsykri og vanillusykri blandað varlega saman við. Sett ofan á kexið í kökuforminu, kælt í ísskáp í 2-3 klst. Skreytt með jarðaberjum.
Arna Óttarsdóttir


Rabbabarapæ
3 dl hveiti 3 dl tröllahafrar 100 gr brætt smjör 3 msk sykur 1 msk sykur ofan á rabbabarann 2-4 stilkar af rabbabara 100 gr suðusúkkulaði ef vil Aðferð: Skerið rabbabarann niður í litla bita, dreifið einni msk af sykri yfir ásamt söxuðu súkkulaði ef vil. Sett í eldfast mót eða hringform. Blandið með fingrunum saman í skál hveiti, tröllahöfrum, smjöri og sykri og dreifið yfir rabbabarann. Bakið við yfir/undir hita 200°C í 15-20 mínútur. Borið fram með þeyttum rjóma eða vanillu
Arna Óttarsdóttir


Hrökk kex úr súrdeigi
20-40 gr súr 1 dl hveiti 1 dl volgt vatn 1/2 dl rifinn parmesan 1 tsk basilika 1 tsk rósamarín 1 tsk paprika 2 msk sesamgaldur eða 1 tsk gróft salt 1 msk sesamfræ 1 msk birkifræ 1 tsk hvítlaukskrydd 1 msk ólífuolía Aðferð: Þessi uppskrift er slumpuð, fer algjörlega eftir magni súrdeigs, en ég nota alltaf afgangs súrdeig sem fer ekki í súrdeigsbrauð. Öllu blandað saman í skál, deigið ef frekar þunnt og dreift á bökunarpappír og bakað við blástur á 180°C í 15-20 mínútur.
Arna Óttarsdóttir


Brauðbollur
350 gr hveiti(6 dl) 2 1/2 dl mjólk 50 gr smjör 7 gr þurrger(2 tsk) 1/2 tsk salt Penslað með: 1 hrært egg Birkifræ eða sesamfræ Aðferð: Blandið volgri mjólk, bræddu smjör og gerinu saman og látið freyða. Hveiti og salti hellt smátt og smátt út í gerblönduna og hnoðið það saman þar til deigið er orðið mjúkt og slétt. Látið hefast í 20-30 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldast. Hnoðið deigið aftur með höndunum og skiptið því upp í ca 22 bollur, raðið á bökunarpappír á bökunarp
Arna Óttarsdóttir


Sítrónukaka með lemon curd
4 dl hveiti 1 1/2 dl sykur 1 tsk lyftiduft 4 dl kókos 150 gr smjör 1 krukka lemon curd Aðferð: Blandið þurrefnunum saman í skál, skerið smjörið í litla bita og setjið út í. Blandið vel saman með höndunum. Takið 3/4 af blöndunni og setjið ofan í eldfast mót og þjappið vel. Smyrjið heilli krukku af lemon curd ofan á. Því næst er afganginum af blöndunni mulinn ofan á. Bakað við yfir/undir hita við 200°C í 25 mínútur.
Arna Óttarsdóttir


Ostaslaufur með beikonsmurosti
3 1/2 dl volg mjólk 1 bréf þurrger 60 gr brætt smjör 600 gr hveiti 1 tsk salt 2 msk sykur Fylling: Beikonsmurostur eða smurostur að eigin vali Skraut: Sesamgaldur eða birkifræ, sesamfræ og salt 1 egg Aðferð: Hitið mjólkina og leysið gerið upp í volgri mjólk þar til fer að bubbla, bætið bræddu smjöri út í. Hveiti, sykri og salti blandað saman við og hnoðið saman í hrærivél í ca 4-6 mínútur, leyft að lyfta sé í 50 mínútur. Deiginu skipt í 2 parta og flatt út í kassa. Smurostinu
Arna Óttarsdóttir


Súkkulaðibita smákökur
280 gr hveiti 1 tsk matarsódi 1 og 1/2 tsk maísmjöl(cornstarch) 1/2 tsk salt 170 brætt smjör 150 gr púðursykur 100 gr sykur 1 egg 1 eggjarauða 2 tsk vanilludropar 200 gr súkkulaðidropar/spænir Aðferð: Þeytið saman í hrærivél púðursykri, sykri og bræddu smjör, því næst er egginu og eggjarauðunni bætt út og þeytt þar til létt og mjúkt. Blandið saman í skál, hveiti, matarsóda, maísmjöli og salti. Þurrefnunum ásamt vanilludropunum bætt saman við í hrærivélina og hrært rólega. Súk
Arna Óttarsdóttir


Eplakaka
150 gr smjör 250 gr sykur 3 egg 230 gr hveiti 1/2 tsk lyftiduft 3-4 græn epli 100 gr súkkulaðispænir 2 msk kanelsykur Aðferð: Smjör, sykur og egg þeytt saman í hrærivél, hveiti og lyftidufti bætt saman við. Eplin flysjuð og skorin í litla bita, kanilsykri stráð yfir, bætt út í deigið ásamt súkkulaðispænunum. Deigið sett í hringform, skreytt með eplasneiðum sem velt hefur verið upp úr kanilsykri ofan á. Bakað við yfir/undir hita 160°C í 1 klst og 20 mínútur.
Arna Óttarsdóttir


Þykkar pönnukökur
12 litlar pönnukökur 2 dl hveiti 2 tsk lyftiduft 1/4 tsk salt 1 egg 2 1/2 dl mjólk 1 dl olía Aðferð: Öllu þeytt saman í skál og steikt á pönnu við miðlungshita. Borið fram með hverju sem vill, td. eggjum, beikoni, sírópi, berjum, nutella, rjóma, sultu.
Arna Óttarsdóttir


Súrdeigsbrauð
100 gr súr 380 gr volgt vatn 500 gr hveiti 12 gr salt Aðferð: Súr útbúinn 50 gr rúgmjöl/50 gr volgt vatn gefið aukalega vatn og rúgmjöl annaðhvern dag þar til súrinn lifnar við, best að geyma súrinn í ísskáp og gefa honum reglulega. Súrnum gefið að "borða" deginum áður. Ca 1 msk súr úr ísskápnum ásamt 50 gr af hveiti og 50 gr af volgu vatni. Þegar súrinn er orðinn "hress" daginn eftir er 100 gr af honum blandað í 380 gr af volgu vatni. Ef súrinn flýtur í vatninu ef hann "hre
Arna Óttarsdóttir


Súkkulaðikaka
400 gr púðursykur 220 gr hveiti 2 msk kakó 2 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi 1 tsk salt 2 egg 2 dl ab mjólk 2 dl uppáhellt kaffi 1dl olía 1 tsk vanilludropar Krem: 2 1/2 dl flórsykur 1 dl kakó 3 msk smjör(við stofuhita) 3 msk mjólk smá salt 1/2 tsk vanilludropar Aðferð: Hrærið öllu hráefnunum saman í hrærivél, deigið er frekar þunnt. Skiptið því í tvö hringlaga form eða ofnskúffu. Bakið við 180°C blástur í 20 mínútur. Kælið áður en kremið er sett ofan á. Fyrir kremið er öllum h
Arna Óttarsdóttir


Skinkuhorn
4 1/2 tsk ger(einn pakki þurrger) 1 dl olía/eða brætt smjör 5 dl volg mjólk 2 msk sykur 1 tsk salt 15 dl hveiti(3 dl seinna) Fylling: Skinkumyrja Aðferð: Gerið leyst upp í volgri mjólk, þar til freyðir, olíunni blandað saman við. 12 dl af hveiti, sykur, og salt sett saman í skál. Gerblöndunni hellt ofan í skálina og hnoðað saman. Leyft að lyfta sér í ca 40-60 mínútur. Deigið hnoðað með höndunum ásamt ca 2-3 dl af hveiti og svo skipt í 4 parta. Flatt út með kökukefli í hring,
Arna Óttarsdóttir


bottom of page