top of page

Matcha bollakökur með hindberjasmjörkremi

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Nov 16
1 min read
  • 3 1/2 dl sykur

  • 110 gr smjör(við stofuhita)

  • 2 egg

  • 4 dl hveiti

  • 1 1/2 tsk lyftiduft

  • 1/4 tsk salt

  • 2 1/2 msk matcha duft

  • 2 msk olía

  • 3 msk ab mjólk

  • 1 tsk vanilludropar

  • 1/2 dl mjólk


Hindberjasmjörkrem:

  • 110 gr smjör(við stofuhita)

  • 3 1/2 dl flórsykur

  • 2 msk hindberjasulta

  • 1 msk mjólk


Aðferð:

Sykur, smjör og egg þeytt vel saman þar til það er létt og ljóst. Bætið því næst olíu, ab mjólk, vanilludropum og mjólk saman við deigið. Sigtið hveitið og matcha, bætið við ásamt lyftidufti og salti, hrært saman. Skammtið deiginu í muffins form og bakið við yfir/undir hita 180°C í 22-25 mínútur eða þar til prjón er stungið í kökurnar og kemur þurr út.

Kremið: Þeytið smjörið þar til það verður létt og ljóst bætið þá einum dl í einu af flórsykri saman við og hrærið á milli, endið á hinberjasultunni og að lokum mjólkinni. Sett í sprautupoka og sett á kaldar bollakökurnar.



Comments


bottom of page