top of page

Ostaslaufur með beikonsmurosti

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
May 5
1 min read

Updated: Sep 3

3 1/2 dl volg mjólk

1 bréf þurrger

60 gr brætt smjör

600 gr hveiti

1 tsk salt

2 msk sykur


Fylling:

Beikonsmurostur eða smurostur að eigin vali


Skraut:

Sesamgaldur eða birkifræ, sesamfræ og salt

1 egg


Aðferð:

Hitið mjólkina og leysið gerið upp í volgri mjólk þar til fer að bubbla, bætið bræddu smjöri út í. Hveiti, sykri og salti blandað saman við og hnoðið saman í hrærivél í ca 4-6 mínútur, leyft að lyfta sé í 50 mínútur. Deiginu skipt í 2 parta og flatt út í kassa. Smurostinum dreift inn í og deigið brotið saman tvölfalt. Skorið í 8 parta og snúið upp á. Leyft að hefast aftur í 30 mínútur. Penslað með hrærðu eggi og sesamgaldri eða fræjum bætt ofan á. Bakað á bökunarpappír á bökunarplötu við 220°C í ca 12-15 mínútur.



Comments


bottom of page