top of page

Skinkuhorn

  • Writer: Arna Óttarsdóttir
    Arna Óttarsdóttir
  • Feb 17
  • 1 min read

Updated: Feb 27

  • 4 1/2 tsk ger(einn pakki þurrger)

  • 1 dl olía/eða brætt smjör

  • 5 dl volg mjólk

  • 2 msk sykur

  • 1 tsk salt

  • 15 dl hveiti(3 dl seinna)


    Fylling:

  • Skinkumyrja


Aðferð:

Gerið leyst upp í volgri mjólk, þar til freyðir, olíunni blandað saman við. 12 dl af hveiti, sykur, og salt sett saman í skál. Gerblöndunni hellt ofan í skálina og hnoðað saman. Leyft að lyfta sér í ca 40-60 mínútur. Deigið hnoðað með höndunum ásamt ca 2-3 dl af hveiti og svo skipt í 4 parta. Flatt út með kökukefli í hring, skorið í ca 6-8 “pitsa” sneiðar. 1 msk af skinkumyrju sett inn í og rúllað upp. Penslað með hræru eggi og sáldrað sesamfræjum eða öðrum fræjum ofan á.

Bakað við 225°C við undir/yfir hita í ca 10 mínútur.




Comments


bottom of page