top of page

Pestósnúðar

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Aug 13
1 min read
  • 4 1/2 tsk ger(einn pakki þurrger)

  • 1 dl olía/eða brætt smjör

  • 5 dl volg mjólk

  • 2 msk sykur

  • 1 tsk salt

  • 15 dl hveiti(3 dl seinna)


    Fylling:

  • 1 krukka grænt pestó eða heimagert pestó

  • 100-200 gr rifinn ostur

  • Heimagert pestó:

    • 150 gr parmesan

    • 1 stórt búnt basil

    • 100 gr furuhnetur

    • 1 hvítlauksrif

    • salt

    • pipar

    • 1-2 msk ólífuolía


Aðferð:

Gerið leyst upp í volgri mjólk, þar til freyðir, olíunni blandað saman við. 12 dl af hveiti, sykur, og salt sett saman í skál. Gerblöndunni hellt ofan í skálina og hnoðað saman. Leyft að lyfta sér í ca 40-60 mínútur.

Pestó - parmesan, basil, furuhnetur, hvítlauksrif, salt, pipar og ólífuolía sett í matvinnsluvél og blandað saman, gott að bæta ólífuolíu og salti eftir smekk og smakka til.

Deigið hnoðað með höndunum ásamt ca 2-3 dl af hveiti og svo skipt í 4 parta. Flatt út með kökukefli í lengju, pestó dreift yfir ásamt rifnum osti og rúllað upp og skorið í snúða. Smá rifnum osti bætt ofan á hvern snúð fyrir sig.

Bakað við 225°C við undir/yfir hita í ca 10 mínútur.




Comments


bottom of page