Brauðbollur
- Arna Óttarsdóttir
- May 31
- 1 min read
350 gr hveiti(6 dl)
2 1/2 dl mjólk
50 gr smjör
7 gr þurrger(2 tsk)
1/2 tsk salt
Penslað með:
1 hrært egg
Birkifræ eða sesamfræ
Aðferð:
Blandið volgri mjólk, bræddu smjör og gerinu saman og látið freyða. Hveiti og salti hellt smátt og smátt út í gerblönduna og hnoðið það saman þar til deigið er orðið mjúkt og slétt. Látið hefast í 20-30 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldast. Hnoðið deigið aftur með höndunum og skiptið því upp í ca 22 bollur, raðið á bökunarpappír á bökunarplötu, látið hefast aftur í 15-20 mínútur. Penslið með hrærðu eggi og bætið birkifræjum eða öðrum fræjum ofan á. Bakað við 250°C undir/yfir hita í 5-7 mínútur.















Comments