Skyrkaka með jarðaberjum
Aug 6
1 min read
Botn:
Digestive kex 12-13 kökur
90 gr smjör brætt
1 tsk kanill
1 msk púðursykur
Fylling:
1 stór dós jarðaberjaskyr
300 ml rjómi
2 msk flórsykur
1 tsk vanillusykur
Skraut:
Jarðaber
Aðferð:
Kexið mulið í matvinnsluvél, bræddu smjöri, kanil og púðursykri bætt út í og hrært saman. Þjappað ofan í kökuform.
Rjóminn þeyttur og jarðaberjaskyri, flórsykri og vanillusykri blandað varlega saman við. Sett ofan á kexið í kökuforminu, kælt í ísskáp í 2-3 klst. Skreytt með jarðaberjum.



Comments