top of page

Skúffukaka ala mamma

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Sep 30
1 min read
  • 250 gr sykur

  • 125 gr smjör

  • 2 egg

  • 250 gr hveiti

  • 1 msk kakó

  • 1 tsk matarsódi

  • 1/2 tsk lyftiduft

  • 1-2 msk mjólk

  • 1 tsk vanilludropar


Krem:

  • 5 dl flórsykur

  • 2 dl kakó

  • 2 msk smjör

  • 2 msk kaffi

  • 2 msk mjólk

  • salt

  • 1/2 tsk vanilludropar


Aðferð:

Þeytið sykur, smjör og eggjum saman í hrærivél, bætið því næst þurrefnunum saman við. Bætið mjólkinni og vanilludropunum við. Hellið deiginu á bökunarpappír á bökunarplötu eða í tvö hringform, bakið við yfir/undir hita 180°C í 20-25 mínútur eða þar til kakan hefur bakast í gegn.

Kremið, sigtið flórsykurinn og kakó saman í hrærivél og þeytið saman við smjör, kaffi, mjólk og vanilludropana. Eftir að kakan hefur kólnað smyrjið kreminu yfir kökuna og skreytið með kókos eða öðru skrauti.



Comments


bottom of page