top of page


Matcha bollakökur með hindberjasmjörkremi
3 1/2 dl sykur 110 gr smjör(við stofuhita) 2 egg 4 dl hveiti 1 1/2 tsk lyftiduft 1/4 tsk salt 2 1/2 msk matcha duft 2 msk olía 3 msk ab mjólk 1 tsk vanilludropar 1/2 dl mjólk Hindberjasmjörkrem: 110 gr smjör(við stofuhita) 3 1/2 dl flórsykur 2 msk hindberjasulta 1 msk mjólk Aðferð: Sykur, smjör og egg þeytt vel saman þar til það er létt og ljóst. Bætið því næst olíu, ab mjólk, vanilludropum og mjólk saman við deigið. Sigtið hveitið og matcha, bætið við ásamt lyftidufti og sal
Arna Óttarsdóttir


Jógúrtkökur(muffins)
5 dl hveiti 4 dl sykur 100 gr brætt smjör 3 egg 1/2 tsk matarsódi 1/2 tsk salt 1 tsk vanilludropar 2 dl ab mjólk 100 gr saxað súkkulaði Aðferð: Þeytið saman sykur, egg og smjör þar til deigið er létt og ljóst. Bætið hveiti, matarsóda, salti, vanilludropum, og ab mjólk við. Hrærið súkkulaði varlega saman við. Setjið í muffins form og bakið við 160°C við undir/yfir hita í ca 30 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn.
Arna Óttarsdóttir


Skúffukaka ala mamma
250 gr sykur 125 gr smjör 2 egg 250 gr hveiti 1 msk kakó 1 tsk matarsódi 1/2 tsk lyftiduft 1-2 msk mjólk 1 tsk vanilludropar Krem: 5 dl flórsykur 2 dl kakó 2 msk smjör 2 msk kaffi 2 msk mjólk salt 1/2 tsk vanilludropar Aðferð: Þeytið sykur, smjör og eggjum saman í hrærivél, bætið því næst þurrefnunum saman við. Bætið mjólkinni og vanilludropunum við. Hellið deiginu á bökunarpappír á bökunarplötu eða í tvö hringform, bakið við yfir/undir hita 180°C í 20-25 mínútur eða þar til
Arna Óttarsdóttir


Kladdkaka
2 egg 2 1/2 dl sykur 100 gr brætt smjör 1 dl hveiti 5 msk kakó 100 gr súkkulaði 2 tsk vanilludropar Salt Aðferð: Þeytið saman eggjum og sykri, bætið síðan bræddu smjöri saman við. Því næst er hveitið og kakó sigtað út í ásamt vanilludropum og smá salti. Hrærið saxað súkkulaði eða súkkulaði spænir saman við með sleif. Sett í smurt smelluform. Bakað við undir/yfir hita 180°C í 20 mínútur. Sigtið flórsykur yfir og berið fram með ís/rjóma og berjum.
Arna Óttarsdóttir


Skyrkaka með jarðaberjum
Botn: Digestive kex 12-13 kökur 90 gr smjör brætt 1 tsk kanill 1 msk púðursykur Fylling: 1 stór dós jarðaberjaskyr 300 ml rjómi 2 msk flórsykur 1 tsk vanillusykur Skraut: Jarðaber Aðferð: Kexið mulið í matvinnsluvél, bræddu smjöri, kanil og púðursykri bætt út í og hrært saman. Þjappað ofan í kökuform. Rjóminn þeyttur og jarðaberjaskyri, flórsykri og vanillusykri blandað varlega saman við. Sett ofan á kexið í kökuforminu, kælt í ísskáp í 2-3 klst. Skreytt með jarðaberjum.
Arna Óttarsdóttir


Rabbabarapæ
3 dl hveiti 3 dl tröllahafrar 100 gr brætt smjör 3 msk sykur 1 msk sykur ofan á rabbabarann 2-4 stilkar af rabbabara 100 gr suðusúkkulaði ef vil Aðferð: Skerið rabbabarann niður í litla bita, dreifið einni msk af sykri yfir ásamt söxuðu súkkulaði ef vil. Sett í eldfast mót eða hringform. Blandið með fingrunum saman í skál hveiti, tröllahöfrum, smjöri og sykri og dreifið yfir rabbabarann. Bakið við yfir/undir hita 200°C í 15-20 mínútur. Borið fram með þeyttum rjóma eða vanillu
Arna Óttarsdóttir


Sítrónukaka með lemon curd
4 dl hveiti 1 1/2 dl sykur 1 tsk lyftiduft 4 dl kókos 150 gr smjör 1 krukka lemon curd Aðferð: Blandið þurrefnunum saman í skál, skerið smjörið í litla bita og setjið út í. Blandið vel saman með höndunum. Takið 3/4 af blöndunni og setjið ofan í eldfast mót og þjappið vel. Smyrjið heilli krukku af lemon curd ofan á. Því næst er afganginum af blöndunni mulinn ofan á. Bakað við yfir/undir hita við 200°C í 25 mínútur.
Arna Óttarsdóttir


Súkkulaðibita smákökur
280 gr hveiti 1 tsk matarsódi 1 og 1/2 tsk maísmjöl(cornstarch) 1/2 tsk salt 170 brætt smjör 150 gr púðursykur 100 gr sykur 1 egg 1 eggjarauða 2 tsk vanilludropar 200 gr súkkulaðidropar/spænir Aðferð: Þeytið saman í hrærivél púðursykri, sykri og bræddu smjör, því næst er egginu og eggjarauðunni bætt út og þeytt þar til létt og mjúkt. Blandið saman í skál, hveiti, matarsóda, maísmjöli og salti. Þurrefnunum ásamt vanilludropunum bætt saman við í hrærivélina og hrært rólega. Súk
Arna Óttarsdóttir


Eplakaka
150 gr smjör 250 gr sykur 3 egg 230 gr hveiti 1/2 tsk lyftiduft 3-4 græn epli 100 gr súkkulaðispænir 2 msk kanelsykur Aðferð: Smjör, sykur og egg þeytt saman í hrærivél, hveiti og lyftidufti bætt saman við. Eplin flysjuð og skorin í litla bita, kanilsykri stráð yfir, bætt út í deigið ásamt súkkulaðispænunum. Deigið sett í hringform, skreytt með eplasneiðum sem velt hefur verið upp úr kanilsykri ofan á. Bakað við yfir/undir hita 160°C í 1 klst og 20 mínútur.
Arna Óttarsdóttir


Súkkulaðikaka
400 gr púðursykur 220 gr hveiti 2 msk kakó 2 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi 1 tsk salt 2 egg 2 dl ab mjólk 2 dl uppáhellt kaffi 1dl olía 1 tsk vanilludropar Krem: 2 1/2 dl flórsykur 1 dl kakó 3 msk smjör(við stofuhita) 3 msk mjólk smá salt 1/2 tsk vanilludropar Aðferð: Hrærið öllu hráefnunum saman í hrærivél, deigið er frekar þunnt. Skiptið því í tvö hringlaga form eða ofnskúffu. Bakið við 180°C blástur í 20 mínútur. Kælið áður en kremið er sett ofan á. Fyrir kremið er öllum h
Arna Óttarsdóttir


bottom of page
