top of page

Rabbabarapæ

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Jul 15
1 min read
  • 3 dl hveiti

  • 3 dl tröllahafrar

  • 100 gr brætt smjör

  • 3 msk sykur

  • 1 msk sykur ofan á rabbabarann

  • 2-4 stilkar af rabbabara

  • 100 gr suðusúkkulaði ef vil


Aðferð:

Skerið rabbabarann niður í litla bita, dreifið einni msk af sykri yfir ásamt söxuðu súkkulaði ef vil. Sett í eldfast mót eða hringform. Blandið með fingrunum saman í skál hveiti, tröllahöfrum, smjöri og sykri og dreifið yfir rabbabarann. Bakið við yfir/undir hita 200°C í 15-20 mínútur. Borið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.






Recent Posts

See All

Comments


bottom of page