top of page

Bananabrauð

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Sep 9
1 min read
  • 2 dl haframjöl

  • 3 dl hveiti

  • 2 tsk kanill

  • 1/2 salt

  • 1 tsk matarsódi

  • 2 tsk lyftiduft

  • 1 msk chia fræ

  • 100 gr pekan hnetur

  • 12 ferskar döðlur

  • 3 vel þroskaðir bananar

  • 1 egg

  • 2 msk hnetusmjör

  • 2 msk olía


Aðferð:

Saxið pekan hneturnar smátt, skiljið nokkrar heilar eftir til skrauts. Steinhreinsið döðlurnar og skerið í bita. Stappið saman vel þroskuðum bönunum.

Blandið þurrefnunum saman í skál og hrærið. Bætið því næst döðlum, bönunum, eggi, hnetusmjöri og olíu saman við og hrærið vel.

Setjið í ílangt form með bökunarpappír, skreytið með heilum pekan hnetum og bakið við undir/yfir hita 200°C í 45-50 mínútur eða þar til prjónn kemur þurr út eftir að stungið er í brauðið.



Comments


bottom of page