top of page


Spaghetti carbonara
300-400 gr spaghetti 4 egg 200 gr parmesan ostur 40 gr smjör 150 gr beikon eða pancetta Pipar Aðferð: Sjóðið spaghettí-ið eftir leiðbeiningum, geymið smá pastavatn til hliðar eftir suðu. Beikon skorið smátt og steikt upp úr smjöri. Parmesan osturinn rifinn niður og 100 gr blandað saman við fjögur hrærð egg. Eftir að beikonið hefur verið steikt í gegn, er spaghettí-inu blandað saman við ásamt eggjablöndunni, piprið vel. Borið fram með afganginum af parmesan ostinum, auka pipar
Arna Óttarsdóttir


Bananabrauð
2 dl haframjöl 3 dl hveiti 2 tsk kanill 1/2 salt 1 tsk matarsódi 2 tsk lyftiduft 1 msk chia fræ 100 gr pekan hnetur 12 ferskar döðlur 3 vel þroskaðir bananar 1 egg 2 msk hnetusmjör 2 msk olía Aðferð: Saxið pekan hneturnar smátt, skiljið nokkrar heilar eftir til skrauts. Steinhreinsið döðlurnar og skerið í bita. Stappið saman vel þroskuðum bönunum. Blandið þurrefnunum saman í skál og hrærið. Bætið því næst döðlum, bönunum, eggi, hnetusmjöri og olíu saman við og hrærið vel. Set
Arna Óttarsdóttir


Flatbrauð/vefja
3 1/2 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 msk olía 1 1/2 dl vatn Hvítlaukssmjör: 4 rif hvítlaukur 100 gr smjör Aðferð: Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti. Hellið því næst olíu og vatni saman við og blandið vel og myndið kúlu. Setjið kúluna í plast og leyfið að standa í 30 mínútur. Skiptið deiginu í 8 parta, flatt út með tortillajárni eða kökukefli. Hægt að bera olíu á bökunarpappír á milli kakana og láta standa ef þær eru ekki steiktar strax. Steiktar við háan hita
Arna Óttarsdóttir


Pestósnúðar
4 1/2 tsk ger(einn pakki þurrger) 1 dl olía/eða brætt smjör 5 dl volg mjólk 2 msk sykur 1 tsk salt 15 dl hveiti(3 dl seinna) Fylling: 1 krukka grænt pestó eða heimagert pestó 100-200 gr rifinn ostur Heimagert pestó: 150 gr parmesan 1 stórt búnt basil 100 gr furuhnetur 1 hvítlauksrif salt pipar 1-2 msk ólífuolía Aðferð: Gerið leyst upp í volgri mjólk, þar til freyðir, olíunni blandað saman við. 12 dl af hveiti, sykur, og salt sett saman í skál. Gerblöndunni hellt ofan í skálin
Arna Óttarsdóttir


Túnfisksalat
1 dós túnfiskur í vatni 1 dós túnfiskur í chilli olíu 1/2 grænt epli 2 soðin egg 1/2 rauðlaukur 2-3 msk sýrður rjómi 1-2 msk kew pie majónes salt pipar Aðferð: Grænt epli, rauðlaukur og eggin skorin smátt. Vatni hellt af túnfisknum og blandað við sýrða rjómann og majónesið, ásamt eplum, lauk og eggjunum. Smakkað til með salti og pipar.
Arna Óttarsdóttir


Hrökk kex úr súrdeigi
20-40 gr súr 1 dl hveiti 1 dl volgt vatn 1/2 dl rifinn parmesan 1 tsk basilika 1 tsk rósamarín 1 tsk paprika 2 msk sesamgaldur eða 1 tsk gróft salt 1 msk sesamfræ 1 msk birkifræ 1 tsk hvítlaukskrydd 1 msk ólífuolía Aðferð: Þessi uppskrift er slumpuð, fer algjörlega eftir magni súrdeigs, en ég nota alltaf afgangs súrdeig sem fer ekki í súrdeigsbrauð. Öllu blandað saman í skál, deigið ef frekar þunnt og dreift á bökunarpappír og bakað við blástur á 180°C í 15-20 mínútur.
Arna Óttarsdóttir


Brauðbollur
350 gr hveiti(6 dl) 2 1/2 dl mjólk 50 gr smjör 7 gr þurrger(2 tsk) 1/2 tsk salt Penslað með: 1 hrært egg Birkifræ eða sesamfræ Aðferð: Blandið volgri mjólk, bræddu smjör og gerinu saman og látið freyða. Hveiti og salti hellt smátt og smátt út í gerblönduna og hnoðið það saman þar til deigið er orðið mjúkt og slétt. Látið hefast í 20-30 mínútur eða þar til það hefur tvöfaldast. Hnoðið deigið aftur með höndunum og skiptið því upp í ca 22 bollur, raðið á bökunarpappír á bökunarp
Arna Óttarsdóttir


Ostaslaufur með beikonsmurosti
3 1/2 dl volg mjólk 1 bréf þurrger 60 gr brætt smjör 600 gr hveiti 1 tsk salt 2 msk sykur Fylling: Beikonsmurostur eða smurostur að eigin vali Skraut: Sesamgaldur eða birkifræ, sesamfræ og salt 1 egg Aðferð: Hitið mjólkina og leysið gerið upp í volgri mjólk þar til fer að bubbla, bætið bræddu smjöri út í. Hveiti, sykri og salti blandað saman við og hnoðið saman í hrærivél í ca 4-6 mínútur, leyft að lyfta sé í 50 mínútur. Deiginu skipt í 2 parta og flatt út í kassa. Smurostinu
Arna Óttarsdóttir


Þykkar pönnukökur
12 litlar pönnukökur 2 dl hveiti 2 tsk lyftiduft 1/4 tsk salt 1 egg 2 1/2 dl mjólk 1 dl olía Aðferð: Öllu þeytt saman í skál og steikt á pönnu við miðlungshita. Borið fram með hverju sem vill, td. eggjum, beikoni, sírópi, berjum, nutella, rjóma, sultu.
Arna Óttarsdóttir


Súrdeigsbrauð
100 gr súr 380 gr volgt vatn 500 gr hveiti 12 gr salt Aðferð: Súr útbúinn 50 gr rúgmjöl/50 gr volgt vatn gefið aukalega vatn og rúgmjöl annaðhvern dag þar til súrinn lifnar við, best að geyma súrinn í ísskáp og gefa honum reglulega. Súrnum gefið að "borða" deginum áður. Ca 1 msk súr úr ísskápnum ásamt 50 gr af hveiti og 50 gr af volgu vatni. Þegar súrinn er orðinn "hress" daginn eftir er 100 gr af honum blandað í 380 gr af volgu vatni. Ef súrinn flýtur í vatninu ef hann "hre
Arna Óttarsdóttir


Skinkuhorn
4 1/2 tsk ger(einn pakki þurrger) 1 dl olía/eða brætt smjör 5 dl volg mjólk 2 msk sykur 1 tsk salt 15 dl hveiti(3 dl seinna) Fylling: Skinkumyrja Aðferð: Gerið leyst upp í volgri mjólk, þar til freyðir, olíunni blandað saman við. 12 dl af hveiti, sykur, og salt sett saman í skál. Gerblöndunni hellt ofan í skálina og hnoðað saman. Leyft að lyfta sér í ca 40-60 mínútur. Deigið hnoðað með höndunum ásamt ca 2-3 dl af hveiti og svo skipt í 4 parta. Flatt út með kökukefli í hring,
Arna Óttarsdóttir
bottom of page