top of page


Flatbrauð/vefja
3 1/2 dl hveiti 1 tsk lyftiduft 1 tsk salt 1 msk olía 1 1/2 dl vatn Hvítlaukssmjör: 4 rif hvítlaukur 100 gr smjör Aðferð: Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti. Hellið því næst olíu og vatni saman við og blandið vel og myndið kúlu. Setjið kúluna í plast og leyfið að standa í 30 mínútur. Skiptið deiginu í 8 parta, flatt út með tortillajárni eða kökukefli. Hægt að bera olíu á bökunarpappír á milli kakana og láta standa ef þær eru ekki steiktar strax. Steiktar við háan hita
Arna Óttarsdóttir


Túnfisksalat
1 dós túnfiskur í vatni 1 dós túnfiskur í chilli olíu 1/2 grænt epli 2 soðin egg 1/2 rauðlaukur 2-3 msk sýrður rjómi 1-2 msk kew pie majónes salt pipar Aðferð: Grænt epli, rauðlaukur og eggin skorin smátt. Vatni hellt af túnfisknum og blandað við sýrða rjómann og majónesið, ásamt eplum, lauk og eggjunum. Smakkað til með salti og pipar.
Arna Óttarsdóttir


Veislubretti
Hérna eru nokkrar hugmyndir að veislubrettum. Mjúkostur - brie, auður, cambembert, gráðostur Harður ostur - feykir, primadonna, old amsterdam, cheddar Ostur með bragði - mexíkóostur, piparostur, paprikuostur, hvítlauksostur Kjötálegg - hráskinka, chorizo, silkiskorin skinka, spægipylsa Ólífur Döðlur Ber - jarðaber, bláber, blæjuber, hindber, brómber, vínber, rifsber Ávextir - epli, perur, melóna, súrar gúrkur, mandarínur, ferskjur Hnetur - pekanhnetur, möndlur, pistasíur, kas
Arna Óttarsdóttir
bottom of page