top of page

Eplakaka

  • Writer: Arna Óttarsdóttir
    Arna Óttarsdóttir
  • Mar 26
  • 1 min read
  • 150 gr smjör

  • 250 gr sykur

  • 3 egg

  • 230 gr hveiti

  • 1/2 tsk lyftiduft

  • 3-4 græn epli

  • 100 gr súkkulaðispænir

  • 2 msk kanelsykur


Aðferð:

Smjör, sykur og egg þeytt saman í hrærivél, hveiti og lyftidufti bætt saman við. Eplin flysjuð og skorin í litla bita, kanilsykri stráð yfir, bætt út í deigið ásamt súkkulaðispænunum. Deigið sett í hringform, skreytt með eplasneiðum sem velt hefur verið upp úr kanilsykri ofan á. Bakað við yfir/undir hita 160°C í 1 klst og 20 mínútur.



Comments


bottom of page