top of page

Pistasíusnúðar

  • Writer: Arna Óttarsdóttir
    Arna Óttarsdóttir
  • Feb 17
  • 1 min read

Updated: Feb 27

  • 240 ml volg mjólk

  • 11,5 gr þurrger(einn poki)

  • 50 gr smjör við stofuhita

  • 40 gr púðursykur

  • 1 tsk kanill

  • 420 gr hveiti

  • Smá salt


Fylling: Pistasíuhnetusmjör


Aðferð:

Mjólkin hituð og gerinu bætt út í mjólkina, leyft að standa aðeins. Smjörið haft við stofuhita. Hveiti, púðursykri, kanil og smjörinu blandað saman í skál. Mjólkinu og gerinu hellt saman við. Hnoðað saman í hrærivél.

Leyft að lyfta sé í ca 40-60 mínútur.

Deigið flatt út, og smurt með pistasíuhnetusmjöri. Deigið brotið yfir báðu megin og skorið í 8 lengjur. Hver lengja er því næsta skorin upp að enda. Snúið/fléttað saman og endinn settur inn í gatið við hinn endann til að mynda snúðinn. Snúðarnir penslaðir með eggi og hrásykur/sykur sett ofan á.

Bakað við 200°C undir/yfir hita í ca 12-14 mínútur.




Comments


bottom of page