top of page

Humarpasta

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Jun 12
1 min read

Humarsoð:

  • Skeljar af 1 kg af humri

  • 2 stönglar sellerí

  • 1 laukur

  • 4 rif hvítlaukur

  • 1 tsk fennel fræ(kramin)

  • 1 tsk timjan

  • 1 lítil dós tómat paste

  • 50 ml hvítvínsedik blandað í 300 ml vatn eða 400 ml hvítvín

  • 400 ml vatn


Humarsósan:

  • 2 msk smjör

  • 2 msk hveiti

  • 1/2 líter rjómi

  • Hvítvín eða hvítvínsedik eftir smekk.

  • Salt

  • Pipar


500 gr spagettí

500 gr skelflettur humar


Aðferð:

Humarsoð: Sellerístönglarnir, hvítlaukurinn og laukurinn skorinn smátt, steikt upp úr ólífuolíu. Humarskeljunum, kryddinu, tómatpaste, hvítvíninu og vatninu bætt saman við. Látið sjóða í 40-50 mínútur á vægum hita, þar til það hefur soðið niður til hálfs. Sigtið blönduna frá og setjið í pott.


Humarsósa: Útbúið smjörbollu, bræðið smjörið og bætið hveitinu smátt og smátt saman við með þeytara. Setjið út í humarsoðið, magn eftir því hversu þykk sósan á að vera. Sjóðið sósuna með rjómanum í 10 mínútur og bætið svo hvítvíni, pipar og salti út í eftir smekk. Sjóðið humarinn í sósunni í 2-3 mínútur og blandið því næst við spagettíið. Berið fram með parmesan, steinselju og brauðbollum eða súrdeigsbrauði.









Comments


bottom of page