top of page

Súrdeigsbrauð

  • Writer: Arna Óttarsdóttir
    Arna Óttarsdóttir
  • Mar 2
  • 2 min read
  • 100 gr súr

  • 380 gr volgt vatn

  • 500 gr hveiti

  • 12 gr salt


Aðferð:

Súr útbúinn 50 gr rúgmjöl/50 gr volgt vatn gefið aukalega vatn og rúgmjöl annaðhvern dag þar til súrinn lifnar við, best að geyma súrinn í ísskáp og gefa honum reglulega.

Súrnum gefið að "borða" deginum áður. Ca 1 msk súr úr ísskápnum ásamt 50 gr af hveiti og 50 gr af volgu vatni. Þegar súrinn er orðinn "hress" daginn eftir er 100 gr af honum blandað í 380 gr af volgu vatni. Ef súrinn flýtur í vatninu ef hann "hress", þessu blandað saman og því næst 500 gr af hveiti útí(gott að nota próteinríkt hveiti), hrært með skeið eða sleif(ekki í hrærivél). 12 gr af salti bætt útí og deigið brotið með höndunum. Teygt á deiginu ca 2-4 sinnum á næstu 2-3 klst. Ef baka á brauðið daginn eftir er það látið hefast í ísskáp en annars á borði. Deigið brotið og látið hefast í hefunarkörfu yfir nótt en einnig er hægt að láta það hefast í skál og brotið áður en það fer í ofninn. Mæli með að skoða myndbönd þegar teygt er á deiginu og það brotið. Skorið er munstur eða eyra í deigið áður en það er bakað í ofninu. Hægt er að nota steypujárnspott eða bökunarplötu. Ef steypujárnspottur er notaður er hann hitaður í ofninum áður en deigið er sett ofan í. Annars eru notaðar tvær bökunarplötur annarri er komið fyrir í neðstu hillu í ofninum og þegar deigið er sett á hina bökunarplötuna er vatni hellt á neðri plötuna til að raki myndist í ofninum. Bakað við 240°C yfir/undir hita í 50 mínútur. Lokið tekið af eftir 40 mínútur ef bakað er í potti.





Comments


bottom of page