top of page

Nautagúllas

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
3 days ago
1 min read
  • 500-600 gr nautagúllas

  • 2 msk smjör

  • 1 1/2-2 laukar

  • 3-4 hvítlauksrif

  • 4 meðalstórar kartöflur

  • 3-4 gulrætur

  • 500 gr tómatapassata

  • 2 msk eða ein lítil dós tómatpaste

  • 1 tsk paprikukrydd

  • 1 tsk timjan

  • 1 tsk kúmín

  • 2 tsk síróp

  • 1/2 - 1 L vatn

  • 2 msk nautakraftur

  • 1 1/2 dl rjómi


Aðferð:

Skerið nautakjötið í munnbita og steikið kjötið upp úr smjöri þar til það verður brúnt og eldað í gegn, takið til hliðar. Saxið smátt og steikið því næst lauk og hvítlauk við vægan hita í 10 mínútur. Flysjið kartöflurnar og skerið í munnbita, skrælið gulræturnar og skerið smátt niður. Bætið kjötinu aftur út í pottinn og kryddið. Bætið kartöflunum, gulrótunum, tómatapassata og tómatpaste út í ásamt sírópi, vatni(magn eftir hversu þykkt þið viljið hafa gúllasið)og nautakraftinum. Sjóðið í 30 mínútur. Bætið rjómanum út í og látið malla við vægan hita í 2-4 klst. Borið fram með brauðbollum eða öðru góðu brauði.



Comments


bottom of page