top of page

Nýrnabaunaréttur

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Nov 10
1 min read
  • 1 dós nýrnabaunir

  • 1 laukur

  • 4-5 hvítlauksrif

  • 1 cm rifinn engifer

  • 2 dl tómatpassata

  • 2 msk tómat paste

  • 1 tsk kúmín krydd

  • 1 tsk pipar

  • 1 tsk reykt paprikukrydd

  • 1 tsk kóríander krydd

  • 1/4 tsk cayenne krydd

  • 1 tsk salt

  • 1/2 tsk garam masala

  • 2 dl vatn


Meðlæti:

Raita:

  • 2 dl grísk jógúrt

  • 1/4 gúrka

  • 1/2 tsk garam masala krydd


Hrísgrjón

Mangó chutney

Hakkaðar möndlur

Steiktur laukur

Hvítlauksnaan/flatbrauð uppskrift hér


Aðferð:

Saxið laukinn smátt niður steikið við vægan hita í ca 8 mínútur, bætið 2 msk af vatni út í, steikið því næst rifinn hvítlauk og engifer í 2 mínútur, bætið 2 msk af vatni saman við og setjið því næst tómat passata og tómat paste út í ásamt 1/2 dl af vatni, leyfið að sjóða saman í 5 mínútur. Bætið öllum kryddunum saman við, ásamt skoluðum nýrnabaunum úr dós og 2 dl af vatni. Stappið nýrnabaunirnar með sleif og leyfið að sjóða í 15-20 mínútur, hrært annars lagið.

Raita: Blandið grískri jógúrt, smátt saxaðri gúrku og kryddið með garam masala kryddi.

Berið fram með soðnum hrísgrjónum, mangó chutney, hökkuðum möndlum, steiktum lauk og naan.





Comments


bottom of page