top of page

Fiskisúpa með kókosmjólk

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Oct 21
1 min read
  • 1-2 stönglar sellerí

  • 1 rauð paprika

  • 1 laukur

  • 5-6 gulrætur

  • 1 dós kókosmjólk

  • 1 dós hakkaðir tómatar

  • 2 tsk karrý mauk (red curry paste)

  • 1-2 tsk sambal oelek chilli paste(magn eftir því hversu sterk súpan á að vera)

  • 2 tsk karrý krydd

  • 400 ml vatn

  • 1 tsk sítrónusafi

  • 200-300 gr þorskur

  • Rækjur eða annað sjávarfang eftir smekk


Meðlæti:

  • Kóríander

  • Lime


Aðferð: Skerið grænmetið smátt niður, steikið upp úr ólífuolíu og bætið karrý maukinu, sambal oelek maukinu og karrý kryddinu saman við, steikið í nokkra mínútur. Hellið því næst kókosmjólkinni, tómötunum og vatninu saman við og sjóðið í ca 15-20 mínútur eða þar til grænmetið er soðið í gegn. Setjið fiskinn ásamt öðru sjávarfangi ef vil út í endann og leyfið að eldast í gegn ca 3-4 mínútur. Borið fram með kóríander og lime og góðu brauði.



Comments


bottom of page