Fiskur í rjómasósu ala pabbi
Sep 24
1 min read
600 gr úrbeinaður og flakaður þorskur
2-3 dl rjómi
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
1 askja sveppir
3 hvítlauksrif
1 fiskiteningur
1 dl hveiti
salt og pipar
Meðlæti:
Hrísgrjón
Gott salat
Aðferð:
Grænmetið er skorið smátt, steikt á pönnu upp úr olíu og lagt til hliðar.
Þroskurinn skorinn í jafn stóra bita, velt upp úr hveiti sem er búið að krydda með salt og pipar, steiktur á pönnu upp úr olíu í ca 2-3 mínútur á hvorri hlið. Grænmetinu bætt út a pönnuna, ásamt rjóma, muldum fisktening og sósan smökkuð til með salt og pipar. Borið fram með hrísgrjónum og góðu salati.



Comments