Pitsa með tómötum og burrata osti
Pitsadeig(2 pitsur)
280 gr hveiti(4 1/2 dl)
1 tsk salt
1 tsk sykur
2 tsk þurrger
2 dl volgt vatn
1 1/2 msk olía
Álegg:
1/2 krukka grænt pestó eða heimagert
2-3 heirloom tómatar
2 hvítlauksrif
ólífuolía
salt
2-3 burrata ostakúlur
Búnt basil
Balsamik edik gljái
Aðferð:
Blandið gerinu út í volgt vatn ásamt olíunni og leyfið að bubbla. Hveiti, salti og sykri blandað saman í skál, hnoðað saman með gerblöndunni. Leyft að lyfta sér í ca 40-50 mínútur. Deiginu skipt í tvennt og flatt út.
Heirloom tómatarnir skornir smátt og settir í skál ásamt ólífuolíu, rifnum hvítlauksrifjum og salti.
Pestó dreift á pitsuna og bakað á bökunarpappír á bökunarplötu við 240°C í ca 10-15 mínútur.
Eftir að pitsan er bökuð er tómatablöndunni dreift yfir pitsuna, því næst burrata ostinum, basil og balsamik gljáa dreift yfir.



Comments