top of page


Tómata og gulrótar súpa
1 laukur 4 hvítlauksrif 8-10 gulrætur 8-10 sólþurrkaðir tómatar 1 dós maukaðir tómatar 1-2 tsk túrmerik 1 teningur grænmetiskraftur salt pipar 1 L vatn Aðferð: Allt grænmetið saxað niður. Laukurinn og hvítlaukurinn steikt upp úr ólífuolíu og kryddað með túrmeriki, þar til laukurinn verður mjúkur. Gulrótum, sólþurrkuðum tómötum, maukuðum tómötum, grænmetisteningum, salt og pipar og vatni blandað saman við og soðið í 20 mínútur. Maukað í blandara eða með töfrasprota.Hitað aftur
Arna Óttarsdóttir
bottom of page