top of page

Sesarsalatsvefja með kjúkling í brauðraspi

Writer: Arna Óttarsdóttir
Arna Óttarsdóttir
Sep 3
1 min read
  • 1 bakki úrbeinaður kjúklingur ca 600 gr

  • 2-3 dl panko eða heimagert brauðrasp

  • 1-2 tsk papriku krydd

  • 1-2 tsk hvítlaukskrydd

  • 1 dl rifinn parmesan

  • 2 hrærð egg

  • 1-2 dl hveiti

  • Iceberg salat eða salatblanda

  • Tortillur eða heimagert flatbrauð


Dressing:

  • 1 1/2 dl grísk jógúrt

  • 1 hvítlauksrif

  • 2 msk sítrónusafi

  • 1 tsk worchester sósa

  • 2 tsk dijon sinnep

  • 1 dl rifinn parmesan ostur

  • salt og pipar


Flatbrauð/vefja:

  • 220 gr grísk jógúrt

  • 140 gr hveiti

  • 2 tsk lyftiduft

  • smá salt

  • eða

  • Hvítlauksflatbrauð uppskrift hér


Heimagert brauðrasp:

  • Afgangar og endar af brauði rifnir niður

  • dreift á bökunarplötu

  • ólífuolíu dreift yfir

  • 1- 2 tsk salt

  • 1 tsk rósmarín

  • 1 tsk óreganó

  • 1- 2 tsk paprikukrydd

  • 1- 2 tsk hvítlaukskrydd

  • Bakað við 200°C í ca 30-40 mínútur eða þar til brauðteningarnir eru gullinbrúnir

  • Notað sem brauðteningar eða sett í matvinnsluvél og útbúið brauðrasp


Aðferð:

Kjúklingnum velt upp úr hveiti, hrærðu eggi og því næst brauðraspi. Brauðrasp er panko blandað með paprikukryddi, hvítlaukskryddi, salti, pipar og rifnum parmesan eða heimagert brauðrasp blandað með parmesan osti. Eldað í ofni við 200°C í ca 30-40 mínútur, þar til hann er eldaður í gegn eða í airfryer 200°C í 20 mínútur.

Útbúið deigið fyrir vefjurnar og steikið þær á pönnu, hægt að nota einfalda vefju úr grískri jógúrt eða hvítlauksflatbrauð.

Dressingin: grískri jógúrt, rifnu hvítlauksrifi, sítrónusafa, worchester sósu, sinnepi, rifnum parmesan blandað saman í skál, smakka til með salti og pipar.

Kjúkling, dressingu og salati raðað á vefjuna, skreytt með rifnum parmesan.





Comments


bottom of page