Flatbrauð/vefja
Sep 3
1 min read
3 1/2 dl hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk salt
1 msk olía
1 1/2 dl vatn
Hvítlaukssmjör:
4 rif hvítlaukur
100 gr smjör
Aðferð:
Blandið saman hveiti, lyftidufti og salti. Hellið því næst olíu og vatni saman við og blandið vel og myndið kúlu. Setjið kúluna í plast og leyfið að standa í 30 mínútur. Skiptið deiginu í 8 parta, flatt út með tortillajárni eða kökukefli. Hægt að bera olíu á bökunarpappír á milli kakana og láta standa ef þær eru ekki steiktar strax. Steiktar við háan hita á pönnu eða grilli þar til bubblur myndast 1-2 mínútur á hvorri hlið.
Hvítlauksrifin rifin smátt og hrært út í brætt smjör. Kökurnar smurðar með hvítlaukssmjöri báðu megin.



Comments