Sítrónufiskur með kartöflumús og pistasíupestó
- Arna Óttarsdóttir
- May 14
- 1 min read
Fiskur
500-600 gr þorskur eða ýsa
1 sítróna (sítrónubörkur rifinn)
2 dl panko rasp
1 egg
50 gr smjör
Salt
Pipar
Kartöflumús
½ kg kartöflur
1 ½ dl mjólk
40 gr smjör
Salt
Pipar
Pistasíupestó
Búnt af basil
1 dl fínrifinn parmesan ostur
½ hvítlauksrif
3 msk ristaðar pistasíuhnetur
½ dl ólífuolía
Aðferð:
Pestó - Búnt af basil, parmesan, hvítlauksrif, pistasíuhnetur og ólífuolía sett saman í matvinnsluvél og blandað vel saman.
Kartöflumús - kartöflurnar flysjaðar og soðnar í ca 20 mínútur, stappaðar og hrært saman við brætt smjör og heita mjólk yfir smá hita í potti þar til orðin mjúk kartöflustappa. Saltað og piprað eftir smekk.
Fiskur - Panko og rifnum sítrónuberki af einni sítrónu, salt og pipar blandað saman í skál. Fiskur skorinn í hæfilega bita, velt upp úr hrærðu eggi og því næst raspinum. Steikt á pönnu upp úr ca 50 gr af smjöri.
Borið fram með sítrónubátum, kartöflumús og pistasíupestóinu.















Comments