Pad Thai núðlur með kjúkling
- Arna Óttarsdóttir
- Jul 24
- 1 min read
600 gr úrbeinuð kjúklingalæri
1/2 pakki hrísgrjónanúðlur (200 gr)
1 rauð paprika
3-4 hvítlauksrif
1-2 msk ólífuolía
2 egg
3-5 stk af pak choi salati (blaðkál)
100 gr salthnetur
Sósan:
3 msk fiskisósa
1 msk sojasósa
2 msk hrísgrjónaedik
1 msk siriacha sósa
2 msk púðursykur eða hunang
1 msk hnetusmjör
Skraut:
2-3 vorlaukar
50 gr salthnetur
1 búnt kóríander
1-2 límónur
Aðferð:
Sjóðið hrísgrjónanúðlurnar eftir leiðbeiningum og skolið með köldu vatni. Blandið öllum hráefnunum í sósuna saman í skál og setjið til hliðar. Skerið kjúklinginn í litla bita og steikið upp úr ólífuolíu á pönnu ásamt fínt rifnum hvítlauk og smátt skorinni papriku. Þegar kjúklingurinn er eldaður í gegn er eggjunum hrært saman og steikt með á pönnunni. Þegar eggin eru elduð er sósunni, núðlunum, salthnetunum og pak choi salatinu blandað út á pönnuna. Allt saman borið fram með smátt skornum vorlauk, salthnetum, kóríander og límónubátum.















Comments