Kjúklingur í karrýkókosmjólk
- Arna Óttarsdóttir
- May 25
- 1 min read
600 gr úrbeinuð kjúklingalæri
1/2 rauðlaukur
1 rauð paprika
4-5 hvítlauksrif
1 msk rifinn engifer
1 msk hnetusmjör
400 ml kókosmjólk
1/2 dl vatn
Rifinn límónubörkur af 1/2 límónu ásamt safanum.
3 msk red curry paste eða panang curry paste
1 msk fiskisósa
1 tsk kjúklingakraftur
Meðlæti:
Hrísgrjón
Vorlaukur
Chilli ef vil
Aðferð:
Sjóðið kókosmjólkina niður með fínt rifnum límónuberki í 5 mínútur. Bætið því næst fínt rifnum hvítlauk og engifer út í. Þá er rauða karrý maukinu og hnetusmjörinu bætt út í og soðið saman í 4 mínútur, hrært reglulega. Kjúklingakrafti, vatni, fiskisósu, smátt skornum kjúkling ásamt saxaðri papriku og rauðlauk bætt út í og látið malla á meðal hita í 8 mínútur eða þar til kjúklingurinn er eldaður í gegn. Blandið límónusafanum saman við og skreytið með vorlauk. Berið fram með hrísgrjónum, vorlauk og sneiddum chilli ef vil.











Comments