Grillað salat með risarækjum
1 poki risarækjur
1 haus romaine kál
1 avocado
1 gúrka
2 maís kólfar(eða 4 litlir)
1 box kokteiltómatar eða piccolotómatar
1 paprika(rauð eða gul)
Marinering fyrir rækjurnar:
1 búnt steinselja
3-4 hvítlauksrif
1 sítróna(sítrónubörkur)
2 msk ólífuolía
1 tsk salt
Dressing:
1 msk sinnep(dijon eða gróft)
1 msk rice wine vinegar
1 msk sítrónusafi
1 tsk hunang
1 dl ólífuolía
Muldar wasabihnetur yfir salatið
Aðferð:
Saxið niður hvítlauksrifin, saxið búnt af steinselju smátt, og rífið börkinn af einni sítrónu og bætið út í ólífuolíu og salti, látið rækjurnar liggja í leginum í ca 10-15 mínútur.
Dressingin - hrærið saman sinnepi, rice wine vinegar, sítrónusafa og hunangi og bætið því næst ólífuolíunni smátt og smátt saman við og hrærið vel.
Skerið avocado, tómatana og gúrkuna í litla bita leggið til hliðar. Skerið romaine kálið endilangt og hafið endann á, penslið með olíu og salti.
Rækjurnar þræddar upp á grillspjót.
Maís kólfar sem eru tilbúnir á grillið þurfa skemmri tíma eða ferskur maís. Grill maís þarf ca 10-15 mínútur á grillinu.
Hitið grillið og grillið fyrst maísinn(lengstur tími), því næst er paprikan grilluð heil 2-3 mínútur eftir því hvort þið viljið hafa hana smá brennda. Romaine kálið grillað í ca 2-3 mínútur á hverri hlið. Síðast eru rækjurnar grillaðar þurfa ca 2-3 mín á hverri hlið eða þar til þær eru orðnar bleikar.
Endinn á romaine kálinu skorinn af og salatið skorið eða rifið niður í litla bita. Paprikan skorin í litla bita. Maísinn skorinn af stönglunum. Rækjurnar teknar af spjótunum. Öllu raðað í skál eða á stóran disk, ásamt tómötunum, avocado og gúrkunni. Dressingunni hellt yfir og muldar wasabihnetur þar næst.



Comments