Tómata og gulrótar súpa
- Arna Óttarsdóttir
- Mar 11
- 1 min read
1 laukur
4 hvítlauksrif
8-10 gulrætur
8-10 sólþurrkaðir tómatar
1 dós maukaðir tómatar
1-2 tsk túrmerik
1 teningur grænmetiskraftur
salt
pipar
1 L vatn
Aðferð:
Allt grænmetið saxað niður. Laukurinn og hvítlaukurinn steikt upp úr ólífuolíu og kryddað með túrmeriki, þar til laukurinn verður mjúkur. Gulrótum, sólþurrkuðum tómötum, maukuðum tómötum, grænmetisteningum, salt og pipar og vatni blandað saman við og soðið í 20 mínútur. Maukað í blandara eða með töfrasprota.Hitað aftur í potti upp að suðu.
Borið fram með finn crisp snakki, sýrðum rjóma, cayenne pipar og kóríander.















Comments