top of page


Kladdkaka
2 egg 2 1/2 dl sykur 100 gr brætt smjör 1 dl hveiti 5 msk kakó 100 gr súkkulaði 2 tsk vanilludropar Salt Aðferð: Þeytið saman eggjum og sykri, bætið síðan bræddu smjöri saman við. Því næst er hveitið og kakó sigtað út í ásamt vanilludropum og smá salti. Hrærið saxað súkkulaði eða súkkulaði spænir saman við með sleif. Sett í smurt smelluform. Bakað við undir/yfir hita 180°C í 20 mínútur. Sigtið flórsykur yfir og berið fram með ís/rjóma og berjum.
Arna Óttarsdóttir


Skyrkaka með jarðaberjum
Botn: Digestive kex 12-13 kökur 90 gr smjör brætt 1 tsk kanill 1 msk púðursykur Fylling: 1 stór dós jarðaberjaskyr 300 ml rjómi 2 msk flórsykur 1 tsk vanillusykur Skraut: Jarðaber Aðferð: Kexið mulið í matvinnsluvél, bræddu smjöri, kanil og púðursykri bætt út í og hrært saman. Þjappað ofan í kökuform. Rjóminn þeyttur og jarðaberjaskyri, flórsykri og vanillusykri blandað varlega saman við. Sett ofan á kexið í kökuforminu, kælt í ísskáp í 2-3 klst. Skreytt með jarðaberjum.
Arna Óttarsdóttir


Rabbabarapæ
3 dl hveiti 3 dl tröllahafrar 100 gr brætt smjör 3 msk sykur 1 msk sykur ofan á rabbabarann 2-4 stilkar af rabbabara 100 gr suðusúkkulaði ef vil Aðferð: Skerið rabbabarann niður í litla bita, dreifið einni msk af sykri yfir ásamt söxuðu súkkulaði ef vil. Sett í eldfast mót eða hringform. Blandið með fingrunum saman í skál hveiti, tröllahöfrum, smjöri og sykri og dreifið yfir rabbabarann. Bakið við yfir/undir hita 200°C í 15-20 mínútur. Borið fram með þeyttum rjóma eða vanillu
Arna Óttarsdóttir


Súkkulaðikaka
400 gr púðursykur 220 gr hveiti 2 msk kakó 2 tsk lyftiduft 1 tsk matarsódi 1 tsk salt 2 egg 2 dl ab mjólk 2 dl uppáhellt kaffi 1dl olía 1 tsk vanilludropar Krem: 2 1/2 dl flórsykur 1 dl kakó 3 msk smjör(við stofuhita) 3 msk mjólk smá salt 1/2 tsk vanilludropar Aðferð: Hrærið öllu hráefnunum saman í hrærivél, deigið er frekar þunnt. Skiptið því í tvö hringlaga form eða ofnskúffu. Bakið við 180°C blástur í 20 mínútur. Kælið áður en kremið er sett ofan á. Fyrir kremið er öllum h
Arna Óttarsdóttir
bottom of page