top of page

Saltfiskkrókettur

  • Writer: Arna Óttarsdóttir
    Arna Óttarsdóttir
  • Feb 17
  • 1 min read

Updated: Feb 23

  • 400 gr saltfiskur

  • 200 gr kartöflur

  • 5 stk hvítlauksgeirar

  • 1 stk rauðlaukur

  • ólífuolía

  • 2 dl rjómi

  • 1 msk hveiti

  • 1 msk smjör

  • 3 msk kóríander

  • 1/2 tsk múskat

  • 1/2 tsk paprikukrydd

  • 1 tsk timian

  • salt og pipar

  • Hjúpurinn: hveiti, hrært egg og brauðrasp(panko)


Sósur með:

Tómatsósa - Maukaðir tómatar hitaðir


Köld sósa

  • 2 msk sýrður rjómi

  • 2 msk japanskt mayo

  • 1/2 tsk gróft sinnep

  • 1 tsk súrar gúrkur

  • 2 tsk sítrónusafi

  • salt og pipar


Aðferð:

Skrælið kartöflurnar og sjóðið í potti í ca 20 mín og stappið. Sjóðið saltfiskinn í ca 10 mín. Saxið hvítlaukinn og rauðlaukinn smátt eða hakkið hann í matvinnsluvél, steikið/mýkið á pönnu í ólífuolíu við vægan hita í 10-15 mín. Hellið rjómanum yfir og sjóðið við vægan hita. Útbúið smjörbollu, smjör og hveiti brætt og hrært saman í potti og því næst hellt út á laukrjómasósuna, látið malla við vægan hita þar til sósan þykknar. Fínsaxið kóríanderinn. Setjið saman í hrærivélaskál, maukaðar kartöflur, saltfiskinn, sósuna, kóríander og öll kryddin. Hrærið öllu vel saman. Myndið því næst bollur og veltið fyrst upp úr hveiti, næst eggi og svo panko.

Eldað í airfryer í 16-18 mínútur eða djúpsteikt í olíu í 3 mínútur á hverri hlið eða þar til gullinbrún skorpa myndast.

Borið fram með heitri tómatsósu og kaldri sósu.





Comments


bottom of page