top of page

Kókosfiskur

  • Writer: Arna Óttarsdóttir
    Arna Óttarsdóttir
  • Mar 18
  • 1 min read

600-700 gr þorskur


Marinering:

  • 250 ml kókosrjómi

  • Safi úr einni límónu

  • Salt


Hjúpur:

  • 4 1/2 dl kókos

  • 1 dl panko rasp

  • 1 tsk chilli explosion krydd

  • Salt

  • Pipar

  • 70 gr brætt smjör


Sósa:

  • 1 dl sýrður rjómi

  • 1 dl kew pie majónes

  • Rifinn börkur af einni sítrónu og safi

  • 1 hvítlauksgeiri rifinn fínt

  • 1 skalottulaukur

  • Salt

  • Pipar


Kartöflur:

  • 1/2 kíló kartöflur

  • 1/2 dl rifinn parmesan

  • 1 tsk rósmarín

  • 1 tsk oregano

  • 1 tsk estragon

  • Salt

  • Pipar


Hrásalat:

  • 1/4 haus rauðkál

  • 2 gulrætur

  • 1 dl hvítvínsedik

  • 1 msk ólífuolía

  • 1 msk hunang

  • 1 msk sítrónusafi


Aðferð:

Þroskurinn skorinn niður í litla bita. Kókosrjóma, límónusafa og salti blandað saman og dreift yfir fiskinn látið marinerast í ísskáp í 20-40 mínútur. Kókos ristaður á pönnu og blandað saman við pankobrauðrasp, chilli explosion, salt og pipar. Eftir að fiskurinn hefur marinerast er honum velt upp úr bræddu smjöri og því næst velt upp úr raspinu. Bitarnir lagðir á bökunarpappír á bökunarplötu og eldaðir við yfirhita 230°C í 8-10 mínútur(fylgist með að hjúpurinn brenni ekki).


Sósan útbúin með því að skera skalottulaukinn fínt niður, raspa hvítlaukinn og sítrónubörkinn og blanda öllu saman í skál með sýrðum rjóma, majónesi, sítrónusafa, salt og pipar.


Hrásalatið, rauðkál og gulrætur rifnar fínt eða skorið þunnt, hvítvínsedikinu, hunanginu, ólífuolíunni og sítrónusafanum blandað saman og hellt yfir. Saltað og piprað eftir smekk.


Kartöflurnar sneiddar í franskar, settar í vatn til að ná sterkjunni úr, þerraðar og settar í skál. Parmesan, ólífuolíu og kryddum blandað saman við. Bakað í ofni við yfir/undir hita við 220°C í ca 30-40 mínútur.




Comments


bottom of page