Kjúklinganúðlur
- Arna Óttarsdóttir
- Apr 29
- 1 min read
1 pakki af asískum eggjanúðlum
1 pakki úrbeinuð kjúklingalæri
1 rauð paprika
1 rauðlaukur
1-2 gulrætur
2 hvítlauksrif fínt rifinn
1 tsk engifer fínt rifinn
4 msk sojasósa
2 msk ostrusósa
1 msk Worcestershire sósa
1 msk sykur
salt
pipar
Skraut
Sesamfræ
Vorlaukur
Aðferð:
Sjóðið eggjanúðlurnar samkvæmt leiðbeiningum. Blandið í skál fínt rifnum hvítlauk, fínt rifnum engifer, sojasósu, ostrusósu, worcestersósu og sykri. Skerið kjúklinginn í bita og steikið í olíu á pönnu þar til eldaður í gegn og kryddið með salt og pipar. Skerið grænmetið smátt og steikið því næst á pönnunni í ca 2-3 mínútur en ekki of lengi það á að vera stökkt. Bætið kjúklingnum út á pönnuna ásamt sósunni og elduðum núðlunum og steikið áfram í 1-2 mínútur. Skerið vorlauk smátt og skeytið með honum og sesamfræjum eftir smekk.











Comments