Sushi baka
- Arna Óttarsdóttir
- Mar 30
- 1 min read
300-400 gr lax
1-2 tsk ristuð sesam olía
Salt
Pipar
Hvítlaukskrydd
1 msk kew pie majónes
1 tsk sojasósa
1 tsk sriracha sósa
3 dl hrísgrjón
6 dl vatn
1 msk mirin
1 msk hrísgrjónaedik
Ristað nori - einn pakki
Sesamgaldur - frá pottagöldrum
1-2 vorlaukar
1 avocado
1/2 gúrka
Aðferð:
Sjóðið 3 dl af hrísgrjónum í 6 dl af vatni. Setjið 1 msk af mirin og 1 msk af hrísgrjóna ediki yfir grjónin og þjappið ofan í eldfast mót. Myljið nori yfir hrísgrjónin og kryddið með sesamblöndu
Setjið laxinn á bökunarpappír á bökunarplötu smyrjið með sesamolíu, kryddið með salti, pipar og hvítlaukskryddi eftir smekk. Bakið við yfir/undir hita 200°C í ca 10 mínútur. Eftir að laxinn er eldaður, tætið hann niður í skál og blandið með 1tsk sojasósu,1 tsk af sriracha og 1 msk af majónesi.
Dreifið laxinum yfir hrísgrjónin, og kreistið majónes og siriacha sósu yfir ásamt söxuðum vorlauk. Bakið við yfir/undir hita við 200°C í 10 mínútur.
Dreifið því næst smátt skornu avocado og gúrku yfir, kryddið með sesamgaldri og berið fram með auka nori ef vill.















Comments