Bleikja með sítrus
- Arna Óttarsdóttir
- Apr 7
- 1 min read
800-1000 gr bleikja miðað við 4 fullorðna
Marinering:
4 msk rjómaostur með lauk og graslauk
Sítrónubörkur af einni sítrónu
Sítrónusafi úr hálfri sítrónu
1 hvítlauksrif
1-2 dl parmesan
Salt
Pipar
Aðferð:
Bleikjan beinhreinsuð og sett í ofnfast mót eða á bökunarplötu. Rjómaostinu, fínrifnum parmesan, fínrifnu hvítlauksrifi, fínrifnum sítrónuberki og sítrónusafa blandað saman í skál ásamt salt og pipar. Blöndunni dreift jafn yfir bleikjuna, skreytt með sítrónubátum og eldað við yfir/undir hita 200°C í ca 15-20 mínútur.
Borið fram með kartöflum og salati.















Comments