Pitsa með perum og gráðosti
- Arna Óttarsdóttir
- Apr 10
- 1 min read
Pitsadeig(2 pitsur)
280 gr hveiti(4 1/2 dl)
1 tsk salt
1 tsk sykur
2 tsk þurrger
2 dl volgt vatn
1 1/2 msk olía
Álegg:
Pera
Hunang
Chilliflögur
Valhnetur
Gráðostur
Rifinn ostur
Vorlaukur
Sýrður rjómi
Aðferð:
Blandið gerinu út í volgt vatn ásamt olíunni og leyfið að bubbla. Hveiti, salti og sykri blandað saman í skál, hnoðað saman með gerblöndunni. Leyft að lyfta sér í ca 40-50 mínútur. Deiginu skipt í tvennt og flatt út. Peran skorin í þunnar sneiðar og steikt eða bökuð upp úr hunangi. Sýrðum rjóma dreift á botninn, kryddað með chilliflögum. Hunangssteiktu perunni dreift á, hunangi sáldrað yfir, hökkuðum valhnetum og söxuðum vorlauk dreift yfir og því næst osti og gráðosti. Bakað á bökunarpappír á bökunarplötu við 240°C í ca 10-15 mínútur.











Comments