Kóreskir kjúklingavængir með gráðostasósu
- Arna Óttarsdóttir
- Mar 22
- 1 min read
1 bakki kjúklingavængir
Kryddhjúpur:
1 msk lyftiduft
2 msk púðursykur
2 tsk engifer krydd
2 tsk hvítlauks krydd(ekki salt)
1/2 tsk lauk krydd(onion powder)
1/2 tsk salt
1/2 tsk pipar
Marinering:
1/2 dl soja sósa
1/4 dl vatn
1 msk siracha sósa
1 msk sambal olelek(chilli paste)
1 msk hunang
1 tsk púðursykur
1 tsk brætt smjör
1 tsk sesamolía ristuð
1 tsk mirin
1/2 tsk maísmjöl(cornstarch)
Skraut:
2 vorlaukar
sesamfræ
Gráðostasósa:
2 msk sýrður rjómi
2 msk kew pie majónes
30 gr gráðostur
salt
pipar
dass sítrónusafi
Aðferð:
Blandið öllu saman í skál í kryddhjúpnum, þerrið kjúklinginn og veltið honum upp úr blöndunni. Leggið vængina á bökunarpappír á bökunarplötu. Eldið í ofn með undir/yfir hita við 200°C í 35-40 mínútur.
Blandið öllu saman í skál fyrir marineringuna, eftir að kjúklingavængirnir eru eldaðir í gegn hellið marineringu yfir og blandið vel, fínt að skilja smá eftir í aukaskál ef vill auka með. Skreytið með sesamfræjum og vorlauk. Gráðostasósan, myljið eða stappið gráðostinn, blandið saman við majónes og sýrðan rjóma, ásamt salti, pipar og dass af sítrónusafa.















Comments