top of page

Japanskur kjúklingaborgari

  • Writer: Arna Óttarsdóttir
    Arna Óttarsdóttir
  • Mar 7
  • 1 min read

1 bakki úrbeinuð kjúklingalæri


Marinering

  • 3 msk. mirin-sósa

  • 3 msk. soja-sósa

  • 2 tsk. engifer, fínsaxaður

  • 2 hvítlauksrif, fínsaxaður


Sesamhjúpur

  • 4 dl maísmjöl (e. cornflour)

  • 6 msk sesamfræ


Hrásalat

  • ¼ haus rauðkál

  • 1 gulrót

  • 2 vorlaukar

  • kóríander, eftir smekk

  • 2 msk. japanskt majónes(kew pie)

  • 2 tsk. sriracha chili-sósa

  • 1 tsk. sítrónusafi


Aðferð:

Útbúið marineringuna í skál eða eldföstu móti. Leggið úrbeinuð kjúklingalærin í marineringuna og geymið inni í ísskáp í 4–5 klst eða yfir nótt. Stráið hjúpnum á disk með köntum. Takið síðan eitt læri í einu og veltið upp úr hjúpnum. Hitið síðan vel af olíu í potti til djúpsteikingar u.þ.b. 1 cm þykkt lag af olíu. Gott er að setja tréprjón út í olíuna til þess að sjá hvort hún sé orðin nógu heit en það ættu að myndast bubblur utan um prjóninn. Djúpsteikið einn bita í einu, þar til hjúpurinn verður stökkur og gullinbrúnn. Raðið bitunum á eldfast mót og eldið kjúklinginn í gegn inn í ofni við 200 gráður, tími fer eftir þykkt bitana en það ætti að taka u.þ.b. 10-20 mínútur. Kjúklingurinn ætti að verða dökkbrúnn að lit.

Hrásalat: Saxið rauðkálið, gulrótina, kóríanderinn og vorlaukinn smátt og blandið saman við majónesið, sririacha chilli-sósuna og sítrónusafann.


Öllu raðað í hamborgarabrauð með kew pie majonesi, borið fram með frönskum kartöflum.



1 Comment


Robert Hafþórsson
Robert Hafþórsson
Mar 21

Þessi lítur vel út!

Like
bottom of page