top of page


Eplakaka
150 gr smjör 250 gr sykur 3 egg 230 gr hveiti 1/2 tsk lyftiduft 3-4 græn epli 100 gr súkkulaðispænir 2 msk kanelsykur Aðferð: Smjör, sykur og egg þeytt saman í hrærivél, hveiti og lyftidufti bætt saman við. Eplin flysjuð og skorin í litla bita, kanilsykri stráð yfir, bætt út í deigið ásamt súkkulaðispænunum. Deigið sett í hringform, skreytt með eplasneiðum sem velt hefur verið upp úr kanilsykri ofan á. Bakað við yfir/undir hita 160°C í 1 klst og 20 mínútur.
Arna Óttarsdóttir
bottom of page