top of page


Hrökk kex úr súrdeigi
20-40 gr súr 1 dl hveiti 1 dl volgt vatn 1/2 dl rifinn parmesan 1 tsk basilika 1 tsk rósamarín 1 tsk paprika 2 msk sesamgaldur eða 1 tsk gróft salt 1 msk sesamfræ 1 msk birkifræ 1 tsk hvítlaukskrydd 1 msk ólífuolía Aðferð: Þessi uppskrift er slumpuð, fer algjörlega eftir magni súrdeigs, en ég nota alltaf afgangs súrdeig sem fer ekki í súrdeigsbrauð. Öllu blandað saman í skál, deigið ef frekar þunnt og dreift á bökunarpappír og bakað við blástur á 180°C í 15-20 mínútur.
Arna Óttarsdóttir
bottom of page