top of page


Túnfisksalat
1 dós túnfiskur í vatni 1 dós túnfiskur í chilli olíu 1/2 grænt epli 2 soðin egg 1/2 rauðlaukur 2-3 msk sýrður rjómi 1-2 msk kew pie majónes salt pipar Aðferð: Grænt epli, rauðlaukur og eggin skorin smátt. Vatni hellt af túnfisknum og blandað við sýrða rjómann og majónesið, ásamt eplum, lauk og eggjunum. Smakkað til með salti og pipar.
Arna Óttarsdóttir
bottom of page