top of page


Jógúrtkökur(muffins)
5 dl hveiti 4 dl sykur 100 gr brætt smjör 3 egg 1/2 tsk matarsódi 1/2 tsk salt 1 tsk vanilludropar 2 dl ab mjólk 100 gr saxað súkkulaði Aðferð: Þeytið saman sykur, egg og smjör þar til deigið er létt og ljóst. Bætið hveiti, matarsóda, salti, vanilludropum, og ab mjólk við. Hrærið súkkulaði varlega saman við. Setjið í muffins form og bakið við 160°C við undir/yfir hita í ca 30 mín eða þar til kökurnar eru bakaðar í gegn.
Arna Óttarsdóttir
bottom of page
